Leita í fréttum mbl.is
Embla

Hjálp bloggvinir / Ert þú til í að birta þetta á þinni síðu?

Elísabet Sigmarsdóttir er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast Encephalocele. Hún er sú eina á landinu sem hefur lifað hann af hingað til. Afleiðingar hans eru ýmsar. Henni fer stöðugt aftur og er í dag í hjólastól. Elísabet er búin að fara í u.þ.b. 60 aðgerðir. Oft var henni ekki hugað líf en er í dag lífsglöð og bjartsýn ung kona þrátt fyrir alla þá þröskulda sem lífið hefur sett henni.

Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varðveitt og hvenær. 

Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði.  Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll.  Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.

Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.

Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.

Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið: liso@internet.is eða þú getur sent mér (Halla Rut) E-mail: halla@kjosehf.is ef þú vilt frekari upplýsingar.

Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.

Og svo er bara líka "nice" að senda henni kveðju: Elísabet.

Með samhug og kærleik

Halla Rut

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Ótrúlegt auðvitað á frekar að setja pening í svona liðveislu heldur en snobb rugl sem stjórnmálamenn virðast aðalega hugsa um.

Hvað ætli það kosti þjóðfélagið að vera ekki með svona liðveislu því að það hlýtur að geta valdið þunglyndi og það kostar heilbrigðiskervið seina meir.

Vonandi fær þessi grein einhverja til að hugsa. 

Skattborgari, 18.7.2008 kl. 12:34

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Hef einhvernvegin lúmskan grun um að þetta fari faraællega fyrst Halla Rut er komin með þetta á borðið sitt.

Greinin er komin yfir á mína síðu. 

S. Lúther Gestsson, 18.7.2008 kl. 12:42

3 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir það S. Lúther.

Skattborgari. Forgangsröðunin er með ólíkindum.  Ekki stendur á þessu liði þegar hjálp vantar í útlöndum en þegar á að eyða nokkrum krónum til að auka lífsgæði langveikrar og fatlaðrar konu þá má engin vera að því að spá í það.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 12:59

4 identicon

Gangi ykkur sem allra best.

Agnar (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 13:06

5 identicon

flott blogg Halla.

jónas Indriðasson (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 13:07

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vonandi fær hún þá aðstoð sem hún þarf. Vitanlega eiga svona mál að vera í forgangi hjá borginni.

Helga Magnúsdóttir, 18.7.2008 kl. 14:02

7 Smámynd: Halla Rut

Ég vona það líka Helga.  Þetta er svo mikilvæg þjónusta. Það gætu svo líka einhverjir tveir tekið þetta að sér saman. Bara hugmynd.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 14:07

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sjálfsagt mál að hjálpa til með að birta þetta á vefsíðunni minni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.7.2008 kl. 14:39

9 Smámynd: Eva Lind Jónsdóttir

Að sjálfsögðu á þetta að vera í forgangi hjá borginni..

ENN... þetta ætti líka að vera í ákveðnum forgangi hjá okkur!

16 tímar á mánuði eru 4 tímar í viku! Ég held að það ætti nú að vera einn eða tveir sem gætu gefið það af sér.

Ég er sjálf sjálfboðaliði í kvennaathvarfinu, svo mínum 16 tímum er vel varið!

Ef allir gæfu sér 16 tíma á mánuði í að hjálpa þeim sem virkilega þurfa á hjálp að halda... þá væri Ísland loks að verða að velferðasamfélagi 

Gott blogg, og gangi vel, Eva Lind.

Eva Lind Jónsdóttir, 18.7.2008 kl. 15:22

10 Smámynd: Ómar Ingi Friðleifsson

Búin

Hilsen Halla mín

Ómar Ingi Friðleifsson , 18.7.2008 kl. 16:15

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Blessuð Halla Rut, ég copy paste inn á síðuna hjá mér, við vonum það besta.
Aldrei hef ég skilið þann hugsunarhátt hjá ráðamönnum þessa lands,
að aldrei vilja þeir vita af því sem þeim þykir óþægilegt, í áratugi hafa þeir látið, "Óþægilegu málin", að þeirra mati svífa um loftin blá eins og þau séu ekki til.
Rétt hjá þér er, að öll vitum við hvað er sett í forgang hjá þessum
ráðamönnum.

                     Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 16:47

12 Smámynd: Skattborgari

"Skattborgari. Forgangsröðunin er með ólíkindum.  Ekki stendur á þessu liði þegar hjálp vantar í útlöndum en þegar á að eyða nokkrum krónum til að auka lífsgæði langveikrar og fatlaðrar konu þá má engin vera að því að spá í það."

Er með ólíkindum minnir mig á gamlan félaga sem lítur alltaf á gallana hjá öðrum en hugsar ekkert um eigin galla. Laga fyrst til heima hjá sér líta svo til annara. Byrja á sínum eigin vandamálum svo getur maður pælt í vandamálunum í öðrum löndum.

Vonum að þetta verði lagað sem fyrst. Það eru miklu fleiri sem þurfa nauðsýnlega á þessu að halda. 


Skattborgari, 18.7.2008 kl. 16:58

13 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þar sem ég er svo klár þá birti ég ekki þessa grein

Heldur vísaði ég frekar á heimasíðuna þína.

Með því móti fást jafnvel enn fleirri til að vísa á síðuna þína og taka þátt

Brynjar Jóhannsson, 18.7.2008 kl. 17:29

14 Smámynd: Halla Rut

Ég þakka ykkur öllum fyrir hjálpina.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 18:58

15 Smámynd: Halla Rut

Ég nýti sjálf liðsmann tvisvar í mánuði fyrir son minn. Ég er svo heppin að mákona mín tekur það að sér. Það eru fáir eins góðir með drenginn minn og hún. Þetta er mikilvægari þjónusta en flestir geta ímyndað sér. Bæði fyrir hann, okkur foreldranna og ekki síst fyrir hina syni mína.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 19:29

16 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já, ég barðist fyrir liðveislu fyrir móðir mína sálugu. Enn hún hafði framið þann glæp að verða gömul og sjúk svo kerfið refsaði henni miskunarlaust fyrir það. 

Hún er dáin núna svo ég vona að allt félagsmálakerfið sé einu vandamálinu færra og óska ég þeim til hamingju með það.

Vona að þeir séu ánægðir...

..og ég er reynslunni ríkari og gæti unnið sem sjúkraliði hvar sem er. Próf á svoleiðis myndi ég bara skeina mér á þó mér væri boðið það..meiri andskotans anti-félagslega þjóðfélagið sem þetta Ísland er.. 

Óskar Arnórsson, 18.7.2008 kl. 20:01

17 Smámynd: Halla Rut

Með lögum eru þeir skyldugir til að veita þessa þjónustu. Hvað ætli þeir spari á ári við það að þykjast ekki finna fólk í þetta?

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 20:29

18 Smámynd: Guðrún B.

Sæl Halla Rut.  Ég tók mer það bessaleyfi að smella þessu í copy/paste inn á síðuna hjá mér.

Mér finnst þetta virkilega fallega gert af þér.

Bestu kveðjur  

Guðrún B., 18.7.2008 kl. 20:49

19 Smámynd: Skattborgari

Setti þetta inn hjá mér koperaði þetta bara og linkinn á þessa umræðu hér. Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 18.7.2008 kl. 21:08

20 Smámynd: Halla Rut

Guðrún, Hippókrates og Skattborgari.

Þakka ykkur innilega.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 21:13

21 Smámynd: Óskar Arnórsson

það vantar lista yfir lögin sem á að fara eftir og hin lögin sem engin þarf að fylgja,,og ég er ekki einu sinni að djóka!..

Óskar Arnórsson, 18.7.2008 kl. 22:19

22 Smámynd: Halla Rut

Þetta er nákvæmlega rétt hjá þér Óskar.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 22:22

23 Smámynd: Jens Guð

  Ég var að sjá þetta og vind mér að sjálfsögðu í að vekja athygli á þessu á blogginu mínu.

Jens Guð, 18.7.2008 kl. 23:05

24 Smámynd: Rannveig H

Halla ég til í að hjálpa ekki málið þú hefur bara samband.

Rannveig H, 18.7.2008 kl. 23:08

25 Smámynd: Halla Rut

Þakka ykkur fyrir Jens og Rannveig.

Kannski bjalla ég í þig Rannveig á morgun.

Halla Rut , 18.7.2008 kl. 23:32

26 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Loksins er ég búin að setja inn greinina þína.

Halla Rut, þú ert hetja.

Guð blessi þig og launi fyrir að hjálpa Elísabet.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.7.2008 kl. 23:53

27 Smámynd: Halla Rut

Rósa: Takk fyrir þetta. Við vitum nú ekki hvort þetta skili einhverjum árangri en við erum þó að reyna. Eins held ég að þetta fái fólk til að hugsa. Ég held að flestir viti ekki einu sinni að hægt sé að fá sér aukavinnu við það að verða liðsmaður.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 00:19

28 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæl Halla Rut.

 Lofsvert framtak hjá þér,og svo sannarlega ætla ég að vona að einhver sem er aflögufær og með einlægan vilja,láti heyra í sér.

Elisabet er dugleg,--Hörkudugleg.

Megi þetta ganga upp,það  vona ég.

Þórarinn Þ Gíslason, 19.7.2008 kl. 00:35

29 Smámynd: Egill

vona innilega að hún fái liðveislu.

 verst er að 7 mánuðir eru bara ekkert svo mikið, ég vinn á sambýli þar sem 3 hafa aldrei fengið liðveislu, 1 í viðbót mjög sjaldan og einhver ár síðan það var síðast.

þannig að þú afsakar þegar ég yppti öxlum yfir þessu öllu saman og fuss og sveia útí þá aðila sem fá 2 milljónir á mánuði fyrir að vera ....

tilbúin?

....

SENDIHERRA ÍSLANDA Í SUÐUR-AFRÍKU

Hvern FJANDANN höfum við að gera við sendiherra í suðurafríku, hún (er kona s.s.) fær hvað 5-6 heimsóknir á ÁRI.

já og aumingja maðurinn hennar fær peninga líka vegna tekna sem hann verður af því hann þarf að húka þarna í sólinni og spila golf allan helv daginn.

þá kemur spurningin, veit einhver hvaða fólk þetta er.

en aftur að liðveislu, aður en fólk sækir um liðveislu mætti það sækja um störf hjá svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. það er friggin mannekla og ekki bjóðandi þeim aðilum sem sitja uppi með innan við öryggismörk af starfsfólki og geta ekkert gert um helgar sér til skemmtunar nema að húka heima vegna skorts á starfsfólki.

Egill, 19.7.2008 kl. 01:00

30 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Heil og sæl; Halla Rut, og aðrir skrifarar !

Tek undir; með ykkur. Þar sem ég er ei, tæknivæddur gjörla, sbr. (link fjanda, nokkurn), get ég ekki annað, en tekið undir, með ykkur, varðandi þessa háðung Reykvízkra, í þessu máli, auk mýmargra annarra, sem kappnæg eru fyrir, hjá þessu 15 menninga hyski, í Ráðhúsinu, við Reykjavíkurtjörn.

Með beztu kveðjum, sem jafnan / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason, 19.7.2008 kl. 01:03

31 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég nýtti mér minn "forgang", svo að vonandi að fólk gefi sér tíma, ef ég væri eldri en tvítug og á réttu svæði myndi ég taka þetta að mér, afhverju ekki að láta gott af sér leiða?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.7.2008 kl. 01:07

32 Smámynd: Halla Rut

Egill: Ég er nákvæmlega sammála þér með sendiherrana. Þetta er einhverskonar "redding" þegar stjórnarmenn eru með eitthvað lið sem það nennir ekki lengur að hafa í kring um sig. Að leggja eins svona skrifstofu niður gæti bjargað málunum á Svæðisskrifstofunni.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 01:34

33 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir þetta Óskar og Róslín.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 01:34

34 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Búin að færa inn á mitt blogg mín kæra

Gangi ykkur vinkonum vel.........Ég veit að eitthvað gott á eftir að gerast.

Knús

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 19.7.2008 kl. 01:53

35 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Góðan dag.Setti þetta inn hjá mér,þótt við þekkjum hvorki haus né sporð á hvort á öðru.En það skiptir ekki máli í svona bónum.Óska öllum góðs gengis.Kærleikskveðja.

Halldór Jóhannsson, 19.7.2008 kl. 09:53

36 Smámynd: Óskar Arnórsson

Búin að setja þetta inn á mitt blogg. Það vantar samskonar hjálp fyrir aðra konu sem ég þekki og hef aðstoðað...og get ekki lengur þar sem ég er ekki á landinu.

Óskar Arnórsson, 19.7.2008 kl. 10:50

37 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu máli Halla. Ég sé að ýmsir hafa birt þetta á sínum síðum m.a. ofurbloggarinn Jens Guð. Ég ætla að birta þetta á minni bloggsíðu með þínu leyfi en ætla ekki að færa það inn fyrr en á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun þegar fólk er komið úr helgarferðunum þannig að þessi færsla lifi þá fram yfir helgi á blogginu. Nema

Jón Magnússon, 19.7.2008 kl. 11:45

38 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir það Jón Magnússon. Og mikið rétt hjá þér, fólk er í fríi. Vona að við getum unnið frekar að slíkum málum saman í framtíðinni.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 11:52

39 Smámynd: Halla Rut

Þakka ykkur Elín og Halldór.  Þótt við þekkjumst ekki Halldór þá erum við partur af sama samfélagi og það er okkur öllum til hagsbóta að þessi mál séu í lagi. Ég minni á; engin veit sína ævi fyrr en öll er.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 11:55

40 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er engin spurning að tíminn er ekki svo góður.
Var að komenta á síðuna hjá henni Elísabetu, að það væri snjallt að endurtaka þetta í vikunni næstu, það þarf að tiltaka dag.
Einnig var ég að segja að það væri örugglega fólk sem mundi vilja vinna svona smá, en væri bara ekki búið að uppgötva hvað það gæti gert bæði gagn og gaman fyrir sjálfan sig og aðra með því.
                      Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 19:37

41 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Var að skoða myndirnar af fjölskyldu þinni mátti til að koma inn með að þeir eru yndislegir strákapollarnir þínir.
Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 19:47

42 Smámynd: Óskar Arnórsson

...Það vantar samskonar hjálp fyrir aðra konu sem ég þekki og hef aðstoðað...og get ekki lengur þar sem ég er ekki á landinu. Einhver áhugi?...halló!..

Óskar Arnórsson, 19.7.2008 kl. 19:59

43 Smámynd: Halla Rut

Milla: Nú er ég og Rannveig hér að ofan með hugmynd um að taka þetta að okkur saman. Viltu vera með? Ef einhver annar bíður sig fram þá velkomin.

Halla Rut , 19.7.2008 kl. 20:39

44 Smámynd: Skattborgari

Ég hef sjálvur þurft á liðveislu að halda þegar ég var yngri. þetta er gott fólk sem ég hef haft kynni af sem vinnur við þetta. Bróðir minn þurfti líka á þessu að halda.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 19.7.2008 kl. 20:43

45 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Halla Rut takk fyrir að spyrja mig, að sjálfsögðu er ég með,
Allt sem ég get gert á tölvuna, í síma eða maili því ég bý á Húsavík.
Láttu mig vita hvernig þið ætlið að fara að þessu.
Ef þú þarft að maila þá er það millagisli@gmail.com
              Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 20:58

46 Smámynd: Martha Elena Laxdal

Þetta er frábær aukavinna með skóla t.d.

Annars eru til lög um liðveislu (10. kafli laga um málefni fatlaðra) eins og þú og Óskar voruð að koma inn á.  Samkvæmt 15. kafla skal "svæðisráð í málefnum fatlaðra...standa vörð um rétt fatlaðra um þjónustu samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum eftir því sem við á."

Auðvitað á Svæðisþjónustan að standa fyrir atvinnuauglýsingum ef það vantar fólk á skrá við liðveislu. Það er alveg ótækt að þjónustuþegar þurfi sjálfir að redda sér - þá eru þeir í rauninni að vinna vinnu sem Svæðisþjónustan á að vinna og fær borgað fyrir.

ég trúi ekki öðru en að þetta leysist farsællega ;)

kv. Mel

Martha Elena Laxdal, 19.7.2008 kl. 21:05

47 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir þetta Dúa. Ég hef samband við þig. Erum að reyna að safna fimm manna hóp til að annast þetta.

Halla Rut , 20.7.2008 kl. 18:10

48 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Linkaði á þig Halla Rut í morgunn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2008 kl. 21:05

49 Smámynd: Skattborgari

Halla. Gengur ekki vel að fá fólk í þetta núna? Vonandi fara sem flestir og sækja um. Vonandi er búið að redda henni allavega.

Skattborgari, 20.7.2008 kl. 21:09

50 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með þetta Halla Rut mín ég fyllist gleði yfir þessu.
þú ert nú meiri undrakonan.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.7.2008 kl. 21:15

51 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Mikið er ég ánægð að vita að þetta mál er í höfn. Ég vildi óska þess að fleiri en Elísabet ættu svona frábæra vini. Elísabet er mjög lánsöm að hafa kynnst þér Halla Rut. Þú ert hetjan okkar í dag.

Við getum greinilega margt hér á blogginu þegar við tökum eitthvað mál og bloggum um það öll. Væri flott í framtíðinni og þá getum við haft fyrirsagnirnar alveg eins.

Takk fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu.

Baráttukveðjur fyrir þeim sem minna mega sín.

Guð blessi ykkur öll.

Kær kveðja/Rósa.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:23

52 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Nu erðin ansi spennt Halla, nei, ég er sko ekki hrædd við karlmenn ef hann getur gert það sem við töluðum um í dag og á ekki húsdýr er þetta frábært.  Ég hef þurft mikla  ummönnun frá karlmönnun  á sjúkahúsum í gegnum tíðina og fynnst þeir betri í þeim málum heldur en hjúkrunarkonur.

 Góð kveðja,

Elísabet. 

Glitter Graphics

Glitter Rose Graphics

Elísabet Sigmarsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:31

53 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gott hjá þér Elísabet, hef nefnilega sömu sögu að segja,
hef líka kynnst því á sjúkrahúsum, þeir eru bara betri.
Knús knús
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.7.2008 kl. 07:40

54 Smámynd: Halla Rut

Stundum þegar maður vill fá eitthvað gert þá verður maður að gera það sjálfur. :)

Halla Rut , 21.7.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halla Rut
Halla Rut
Hef sterkar skoðanir á ýmsum samfélagsmálum og er viljug til að ræða þau öll á málefnalegum grundvelli. 

"Orð eru til alls fyrst" 

Ég á þrjú börn, allt stráka og er sá í miðjunni andlegafatlaður en það hefur mótað líf mitt mikið. 

Er kaupmaður af líf og sál.

Verið óhrædd við að senda mér línu. Póstfang: halla@kjosehf.is

Sími: 6605400.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.3.): 86
  • Sl. sólarhring: 98
  • Sl. viku: 349
  • Frá upphafi: 777640

Annað

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 220
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband