Leita í fréttum mbl.is
Embla

Tryggingafélögin hafa engan áhuga á að tryggja mitt og mína.

Þann 7. júlí síðast liðinn sendi ég 5 tryggingafélögum eða tryggingamiðlurum ósk um tilboð í tryggingu á heimili mínu og farartækjum.

Fyrirtækin sem fengu frá mér tölvupóst voru: Sjóvá, Tryggingamiðstöðin, Vís, Tryggingamiðlun Íslands og Vörður.

Eingöngu eitt fyrirtæki hafði fyrir því að svara mér. Segið það manni ekki ansi mikið um þjónustustig þeirra sem nenna ekki einu sinni að svara fólki sem er að leita eftir því að komast í viðskipti við þá? Nú þegar er ég í viðskiptum við tvö þeirra fyrirtækja er ég leitaði til en áhugi þeirra á mér, er nú ekki meira en þetta.

Svo svar mitt var því einfalt. Því úr engu var að velja og mun ég semja við Tryggingamiðlun Íslands um leið og ég þakka þeim góð og snögg viðbrögð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég hélt að fyrirtækjarekstur byggist á að laða að sér kúnna.

Það mætti halda að þessi tryggingarfélög hafi það gott að þau nenni ekki að sinna sínum verðandi kúnnum líklega vegna þess að þau hafa það allt of gott.

Brynjar Jóhannsson, 15.7.2008 kl. 20:07

2 Smámynd: Skattborgari

Mér finnst það nú ekki skrítið geturðu sagt mér hvernig í andskotanum þú fórst að þessu eða Þessu? Léleg þjónusta ég hefðu nú haldið að það væri þeim í hag að fá sem flesta viðskiptavini.

Skattborgari, 15.7.2008 kl. 20:09

3 Smámynd: Halla Rut

Já, það er munur að reka fyrirtæki sem þarf ekki á nýjum viðskiptum að halda.

Flottar myndir Skattborgari.

Tryggingarnar á skellinöðru sonarins fóru úr 86.000- niður í 46.000.-

Halla Rut , 15.7.2008 kl. 20:13

4 Smámynd: Ómar Ingi Friðleifsson

Við vonum að allir séu samt jafn vel tryggðir

Ómar Ingi Friðleifsson , 15.7.2008 kl. 20:37

5 Smámynd: Skattborgari

Það borgar sig að vera vel trygður maður tryggir ekki eftir á því miður. Ég er með allt vel tryggt nema sjálvan mig.

Skattborgari, 15.7.2008 kl. 21:23

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Erla mér finnst þetta góður búhnykkur og réttast væri að herma á eftir þér í þeirri von að eitt og eitt fyrirtæki svari.

Sigurjón Þórðarson, 16.7.2008 kl. 09:23

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tryggingarfyrirtækin hljóta að hafa það svona rosalega gott, með okkur hin til að borga brúsann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2008 kl. 10:51

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vitanlega fer maður ekkert að abbast upp á fyrirtæki sem vilja ekkert með mann hafa.

Helga Magnúsdóttir, 16.7.2008 kl. 11:08

9 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

asnalegt svo hringja þessi félög í aðra í tíma og ótíma þetta er ein stór klíka eins og allt á Íslandi og í samráði við bankana

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 16.7.2008 kl. 15:15

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Kannast við þetta. Ég sendi póst á TM í gegnum þeirra kerfi og fékk ALDREI svarið. Ég hafði haft samband símleiðis til að fá að vita um Visa tryggingu vegna dóttur minnar sem var veik erlendis. Maðurinn sagði mér að hafa samband í gegnum email sem og ég gerði af heimasíðu þeirra í fyrirspurnarsystemi einhverju, sem virkaði nú ekki betur en það að aldrei kom svarið, eins og áður sagði.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.7.2008 kl. 16:02

11 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Er kannski bara lokað vegna sumarleyfa.  Þetta er merkilegt í ljósi þeirra hunduðaþúsunda sem meðalJóninn borgar í tryggingar ár hvert.  Ég hef reyndar mjög góða reynslu af TM.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.7.2008 kl. 17:20

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tryggingamiðlun Íslands er traust fyrirtæki, trúverðugt og hefur á að skipa frábæru starfsfólki. Þetta er elsta vátryggingamiðlunin og var stofnuð af Karli Jónssyni árið 1997 ef ég man rétt. Karl er ennþá eigandi fyrirtækisins og stjórnar því. Þetta er sjálfstætt starfandi ráðgjafafyrirtæki í trygginga-og lífeyrismálum og tekst í afar mörgum tilvikum að veita fólki aðstoð við að gera slæma hluti góða og góða hluti betri.

Ég hef sjálfur starfað þarna og kynnst því frábæra fólki sem fyrirtækið hefur á að skipa. En þarna ríkja strangar reglur sem tryggja vönduð vinnubrögð.

Árni Gunnarsson, 16.7.2008 kl. 20:21

13 Smámynd: Asdis Sig

Í þessum málum hef ég verið heppin, nema með Sjóvá hér um árið. Vona að þú fáir nú góða þjónustu hjá þínu nýja tryggingarfélagi. Kær kveðja og knús

Asdis Sig, 16.7.2008 kl. 22:35

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég var að setja saman undirskriftarlista til stuðnings Ásmundar Jóhannssonar, sem ég mun svo afhenda stjórnvöldum þegar að því kemur.

Hann er að finna hér http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur 

Fyrirgefðu að þetta kemur greininni einni ekkert við, en ég veit að þú tekur vel í þetta.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.7.2008 kl. 22:57

15 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir þetta Árni. Ég átti greinilega bara að tala við þig strax.

Tryggvi: Kannski ætti að skoða verðsamráð þarna næst!

Halla Rut , 17.7.2008 kl. 19:15

16 identicon

Bara að muna eitt með tryggingar félög er það að þú ert tryggð fyrir öllu nema tjóni og þau reyna að koma ser undan samningum eins og hægt er

einnig að athuga að ef þú ert með topplúgu á bílnum þínum þá er hún ótryggð svo þú ert ekki með nema 90% tryggingu á bílnum.

 það er mín reynsla

kv...Birgir

Birgir (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halla Rut
Halla Rut
Hef sterkar skoðanir á ýmsum samfélagsmálum og er viljug til að ræða þau öll á málefnalegum grundvelli. 

"Orð eru til alls fyrst" 

Ég á þrjú börn, allt stráka og er sá í miðjunni andlegafatlaður en það hefur mótað líf mitt mikið. 

Er kaupmaður af líf og sál.

Verið óhrædd við að senda mér línu. Póstfang: halla@kjosehf.is

Sími: 6605400.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.3.): 15
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 323
  • Frá upphafi: 777877

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 169
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband