Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bænagangan / Baldur Freyr

baldur f

Matti Á.'s photos  Pro User

Árið 2002 börðu, Baldur Freyr og félagi hans, rúmlega tvítugan mann til dauða fyrir utan skemmtistaðinn Spotlight sem var þekktur skemmtistaður samkynhneigðra. Þeir þekktu ekkert til unga mansins og segja vitni að árásin hafi verið tilefnis laus með öllu. SJÁ HÉR. Það var ætíð sterkur grunur um að ástæða árásinnar hafi verið fordómar gagnvart hommum.  Baldur fékk eingöngu 3 ár fyrir morðið sem er með ólíkindum vægur dómur.  Taka skal fram hér var einnig verið að dæma hann fyrir tvær aðrar líkamsárásir sem hann framdi það sama ár. Hann var í mikilli neyslu á þessum tíma og fyrst þeir eru búnir að hleypa dýrinu út þá er nú ágætt að hann sé ekki að dópa (vona að það sé rétt).

Það er þó greinilegt að Baldur Freyr hefur ekki látið af hatri sínu því nú hefur hann tekið Biblíuna sér í hönd og notar hana sem vopn gegn samkynhneigðum.  Hann notar guðstrú fólks til að fá það í lið með á meðan hann úthúðar þeim hópi fólks sem hann hatar. Sá hópur fólks sem hann beinir hatri sínu til hefur svo vitað sé, ekki gert honum neitt og get ég ekki séð hvernig samkynhneigðir trufla hans líf á nokkurn hátt. En samt kallar hann samkynhneigða "sora" opinberlega og finnst mér það til furðu því heldur hefði ég viljað sjá iðrun, skömm og eftirsjá vegna þessa hrottalega glæps sem hann framdi.

Það hlýtur að vera erfitt fyrir foreldra Magnús Freys Sveinbjörnssonar að horfa uppá bana mann sonar þeirra ganga niður aðalgötu Íslendinga með fánan okkar að baki sér, talandi fyrir hönd Guðs og með fylki fólks með sér sem virðist fylgja honum og bera fyrir honum virðingu. 

Batnandi mönnum er best að lifa og hefur Baldur Freyr tekið út þá refsingu sem þjóðin gaf honum.  Það er þó mín skoðun að þegar um iðrun er að ræða þá sýnir maður það í verki með hógværð og góðum verkum og framar öllu skal maður haga athöfnum sínum og hegðun með fyllstu tillitsemi við aðstandendur þeirra fórnarlama sem urðu fyrir barðinu á manni.
Það hefur Baldur Freyr svo sannarlega ekki gert. 

Ég votta fjölskyldu og vinum Magnúsar, sem hér er á myndinni til hliðar, mína fyllstu samúð og ég bið þá afsökunar á þeim löndum mínum sem fylgdu morðingja sonar þeirra í bænargöngunni sem Baldur gekk, að því virðist að hans eigin sögn, í nafni haturs. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fjölskylda Magnúsar hefur átt mjög erfitt.  Og það er með ólíkindum að morðinginn skuli njóta velvildar presta og preláta.  Svei því bara.  Ég á ekki orð yfir þessa hræsnara sem nota krossinn og Krist sem skálkaskjól fyrir þær fýsnir sínar að fordæma annað fólk.  Og upphefur morðingja, til að reyna að niðurlægja fólk sem ekkert hefur til saka unnið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.11.2007 kl. 20:33

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góð gein Halla mín ég vil líka votta fjölskyldu hans mína samúð.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.11.2007 kl. 20:36

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Halla mín, ég skil þig fullkomlega,

Það eru orð þín: „Það er þó mín skoðun að þegar um iðrun er að ræða þá sýnir maður það í verki með hógværð og góðum verkum og framar öllu skal maður haga athöfnum sínum og hegðun með fyllstu tillitsemi við aðstandendur þeirra fórnarlama sem urðu fyrir barðinu á manni.“

Siðblindir menn skilja þetta ekki, eins og Atli sem drap vin sinn Einar og tók svo þátt í að leita að honum.  Svei og svei, hefði kannski keypt það, að hann hefði verið í svo mikilli neyslu þegar atvikið átti sér stað.

En Atli er enn að. Hann skilur ekki það sem þú, ég og margir aðrir meina með hógværð og tilltitsemi.

Takk Halla mín, þetta var góð grein. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.11.2007 kl. 21:46

4 identicon

Kvöldið,

  Ég byrja á því að taka fram að ég þekki aðila þessa máls ekkert.

  Þetta fer samt að vera virkilega vandræðalegt. Það sjá allir sem vilja sjá að Halla Rut er greinilega mjög bitur manneskja og á mjög bágt, af augljósum ástæðum. Af hverju reynir ekki einhver að stoppa þetta. Allavega virðist þessi Ásthildur ekki líkleg til þess. Þvílíkt hatur. Þvílíkir fordómar. Sorglegt.....................................................................................................................

Pétur Baldursson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 21:46

5 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Vinsamlegast taktu fram hvaðan ljósmyndin er þegar þú notar mynd frá mér.  Ekki er nóg með að mín sé hvergi getið heldur er búið að fjarlægja allar upplýsingar um höfundarrétt úr myndinni á þinni síðu (væntanlega geri þetta moggabloggkerfi það þegar myndin er minnkuð eða vistuð).

Matthías Ásgeirsson, 12.11.2007 kl. 22:14

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég þykist frekar getað séð að Pétur vaxi ekki í vitið en á erfitt með að skilja hvernig Halla sé bitur. Raunar tíbískur jólasveinn með gáfnafar snigilsins .

Brynjar Jóhannsson, 12.11.2007 kl. 22:18

7 Smámynd: Halla Rut

Matthías ég biðst forláts en, Já titillinn hverfur allaf þegar maður setur inn myndir hér á Mogganum. Þetta var langbesta myndir sem ég fann. Góðir litir, góð hlutföll og dramatísk.

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:27

8 Smámynd: Halla Rut

Ég bara velti fyrir mér hvaða augljósu ástæður Pétur segir alla sjá fyrir biturleika mínum og bágindum

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:33

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Pétur þolir bara ekki konur sem rífa kjaft..

Brynjar Jóhannsson, 12.11.2007 kl. 22:36

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Aldrei hef ég lesið biturleika út úr þínum skrifum Halla.

Þröstur Unnar, 12.11.2007 kl. 22:41

11 Smámynd: Halla Rut

Bíddu Brynjar ertu að segja að ég sé Jólasveinninn með sníglagáfurnar?

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:42

12 Smámynd: Freyr Hólm Ketilsson

Hehe Halla þú ert snillingur ekki snigill heldur snillingur, alltaf þegar maður kemur hér inn þá eru blogg í gangi sem skapa skemmtilegar umræður.

Takk fyrir mig.

Freyr Hólm Ketilsson, 12.11.2007 kl. 22:47

13 Smámynd: Halla Rut

Ég hef nú verið kölluð flest hér á netinu en aldrei bitur.....

Og ekki segja að ég eigi bágt, það fer alveg með mér ég er nefnilega svo töff, ég gæti orði bitur ef hann heldur þessu áfram.

Kannski er þetta einhver sem er að verða fyrir biblíu heilaþvotti hjá Baldri Frey.  

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:53

14 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir Freyr það er líka gaman að menn hér inn sem eru svona snyrtilega klæddir.

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:56

15 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

HALLA... ég var að segja að hann væri með það.. þetta var illa skrifað hjá mér.. skaut mig í fótinn..

Brynjar Jóhannsson, 12.11.2007 kl. 22:57

16 Smámynd: Fríða Eyland

þetta er fyrir neðan allar hellur, hvers konar trúarbrögð eru það sem ala á andúð og hatri...síðan fara biskuparnir ásamt lögreglustjórum og mótorhjólamönnum í skrúðgöngu og fagna,biðja,.... heimta meiri kristinfræði 9 ár er þeim ekki að skapi....heilaþvotturinn skal alger ekkert minna.. þá hverfum við aftur inní skúmaskotin, skemmt er að minnast miðalda...þá var lýðurinn stilltur......

Fríða Eyland, 12.11.2007 kl. 22:59

17 Smámynd: Halla Rut

Ég fékk nú bara nett sjokk BRYNJAR

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 22:59

18 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já.. en þetta er alveg tíbískt.. hahahah ég var að reyna að verja þig.. og út af því að ég klöngraði þessu svona vitlaust út úr mér.. þá halda allir að ég hafi verið að bauna yfir þig.

Brynjar Jóhannsson, 12.11.2007 kl. 23:04

19 Smámynd: Halla Rut

Fríða: Mér finnst alveg nóg um þessa kristnifærði sem sonur minn elsti er búin að fara í. Hann þurfti meðal annars að læra um stjórnarfar sem var í slóðum Jesú þegar þetta á allt að hafa verið í gangi.  Þetta var hann að læra áður hann var farin að lesa um sögu Íslands. Ég var mjög stutt frá því að taka hann úr faginu en þar sem það er ekki boðið siðfræði eða trúfræði í staðinn lét ég við sitja. Það á ekki að troða trú uppá fólk eða börn það á að vera val.

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 23:15

20 Smámynd: Theódór Norðkvist

Merkilegt hvað fólk hamast hér á manni sem virðist hafa séð að sér og snúið sér frá villu vegar síns. Þrátt fyrir að hafa framið hrottalegt morð, þá er þetta gott framtak hjá þessum unga manni. Það er smásálaháttur að vera að rífa það niður.

Ég er sammála því að 3 ár er allt of lítill dómur fyrir morð, en það er fyrst og fremst dómskerfinu á Íslandi að kenna. Ég vona svo sannarlega að iðrun Baldurs sé sönn. Það ræðst fyrst og fremst af verkunum hvort hún er sönn og þeir hlutir sem hann hefur gert undanfarið eru af hinu góða.

Það er frekar að sú staðreynd að dæmdur morðingi skuli rífa upp kristilega vakningu sé áfellisdómur fyrir okkur hin, sem þykjumst vera svo góð, lemjum engan, stundum okkar vinnu, en tekst sjaldan að rífa okkur upp úr meðalmennsku og deyfð. 

Theódór Norðkvist, 12.11.2007 kl. 23:38

21 Smámynd: pirrhringur

oh Halla, þú ert svo bitur, hvað er þetta eiginlega með þig?

en að öðru, BF fékk meðbyr fyrst þegar hann kom fram sem iðrandi maður en núna virðist einhverskonar mikilmennskukast komið í gang og það er dáldið uggvænlegt - ég er mjög sammála fjórðu athugasemdinni, hún segir allt sem ég hefði viljað bæta við þetta.

pirrhringur, 12.11.2007 kl. 23:51

22 Smámynd: Halla Rut

Theódór:
Ég tek fram í skrifum mínum að Baldur sé búin að borga skuld sína við samfélagið.  Grunur var sterkur um að þeir Baldur Freyr og félagi hans hafi ráðist á unga manninn því hann var að koma út af stað sem var skemmtistaður fyrir samkynhneigða.  ungi maðurinn deyr eins og allir vita. Baldur kallar svo samkynhneigða "sora" í sjónvarpinu. Finnst þér það mikil iðrun þegar maður sem sakaður er um að drepa mann vegna fordóma sinna heldur svo áfram að ráðast á þann sama minnihluta hóp. Hvar er þessi iðrun sem þú talar um.

Halla Rut , 12.11.2007 kl. 23:55

23 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ég vona að þú þekkir vel til.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.11.2007 kl. 23:57

24 Smámynd: Halla Rut

Anna.
Hún er Ingibjörg er svo nösk á að sjá málin í skýru ljósi.  Og svo er hún skotin í mér, hún sagði mér það við síðasta blogg mitt...

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 00:00

25 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG hef reyndar aldrei heyrt að þessi árás hafi verið gerð vegna kynhneigðar unga mannsins, fylgdist þó vel með málinu á sínum tíma, þar sem ég þekkti einn sem blandaðist í málið. En að öðru leyti ætlað ég ekki að blanda mér í þessa umræðu.  Hafðu það gott Halla mín.

Ásdís Sigurðardóttir , 13.11.2007 kl. 00:11

26 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég sá nú ekki þetta viðtal við Baldur á Omega, enda hef ég óbeit á þeirri stöð og þeim mönnum sem þar ráða ríkjum.

Það er mikið á reiki hvað hann sagði orðrétt, t.d. fullyrðir Margrét S Hafsteinsdóttir í bloggi sínu að Baldur hafi sagt samkynhneigðir eu sori, síðan segir hún í 45. innleggi: "Sko orðrétt minnir mig að hann hafi sagt að gaypride væri soraganga"

Það er alls ekki það sama og segja að samkynhneigðir eru sori. Enn eitt dæmið um fjöðrina sem varð að fimm hænum, alltaf þarf að ýkja og rangtúlka. 

Theódór Norðkvist, 13.11.2007 kl. 00:14

27 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það nú Þjóðkirkjunni til skammar að hafa lagt lið sitt við þessa göngu. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.11.2007 kl. 00:25

28 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Úff ég skil ekkert í þessu,  ég hélt þessi ganga átti að vera til biðja um lausn gegn eiturlyfjum,drykkju, einelti þunglyndi, ótta, geðröskunum, einelti, áhyggjum, ofbeldi, sjálfsvíga.  Að það ætti að biðja gegn myrkrinu.  Það hljómar svo fallega.  Afhverju þurfa alltaf einhverjir að nýta sér það góða og skemma og nýta sér það til að búa til eitthvað illt og óhugnarlegt?

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.11.2007 kl. 00:35

29 Smámynd: Halla Rut

Furðulegt að gera göngu fyrir öllu þessu, sem gott er, og hafa svo mann fremst sem særir svo marga að sjá. Mann sem rífur upp sár hjá fólki sem missti son sinn fyrir svo stuttu síðan. Mér finnst það bara ekki passa og finnst furðulegt að hann skuli ekki sýna fólkinu tillitsemi og hafa hljótt heldur en að glenna sig framan í alla fjölmiðla og sýna svo vanþóknun á samkynhneigðum.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 00:50

30 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Já, mögulega var hugmyndin að sýna að fólk geti bætt ráð sitt.  Vonandi.  Ég allavega trúi ekki að allt þetta fólk ætlaði sér að særa.  Flestir ætluðu sér bara gott með þessari göngu, leiðinlegt að til sé fólk sem tekst að skemma það og nota gönguna til að fá útrás á hatri sínu.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.11.2007 kl. 00:53

31 Smámynd: Halla Rut

Auðvitað ætlaði ekki þetta fólk að særa en hann gerði það örugglega.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 01:05

32 Smámynd: Fríða Eyland

Nanna þér finnst lítið athugavert við þetta en mér mikið....afar mikið...

Fríða Eyland, 13.11.2007 kl. 01:12

33 Smámynd: Fríða Eyland

Fríða Eyland, 13.11.2007 kl. 01:16

34 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ekki setja orð í minn mun Fríða, þú nákvæmlega veist ekkert hvað mér finnst. 

Eina sem ég veit, er að ég þekki ekki nóg til þessa manna til að dæma. Ég man eftir þessu máli en ekki eftir að það snerist um að þolandinn var samkynhneygður. Ég var ekki þarna á þessari göngu og hef ekki séð neitt um hana nema veggspjaldið, lesið nokkur viðtöl og greinar. Ég hef reynt að temja mér það að dæma aðra sem minnst og trúa frekar því besta upp á fólk frekar en hið versta.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.11.2007 kl. 01:20

35 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Myndir segja svona svipað mikið og þú vilt sjá út úr þeim.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.11.2007 kl. 01:21

36 Smámynd: Halla Rut

Ég finn til með foreldrum drengsins sem missti líf sitt að þurfa að horfa uppá þetta.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 01:36

37 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Auðvita og fjölskyldu mannsins sem framdi verkið.  Hræðileg sorg fyrir þessar tvær fjölskyldur.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.11.2007 kl. 01:47

38 Smámynd: Fríða Eyland

þeir tala um samkynhneigða með andúð hvers konar trúarbrögð eru það sem ala á andúð og hatri...

Afhverju þurfa alltaf einhverjir að nýta sér það góða og skemma og nýta sér það til að búa til eitthvað illt og óhugnarlegt? þessi orð þín fóru öfugt ofaní mig ég biðst velvirðingar. ætlaði ekki að leggja þér orð í munn eða vera ókurteis á nokkurn hátt ....

Fríða Eyland, 13.11.2007 kl. 02:06

39 identicon

Lýsir það ekki hræsni trúaðra vel þegar þeir taka mann sem hefur brotið eitt mikilvægasta boðorðið upp á arma sína, gera hann að talsmanni sínum á meðan þeir gera aðsúg að samkynhneigðum í félagi við morðingjann.

Meira að segja er löggan hin ofurtrúaða sem vildi laga öll vandamál bæjarins með því að senda trúboða í bæinn stígur vangadans við kauða.
Mun löggan ásamt hallelújaliði vera í misskildum kærleiksdans við alla morðingja og glæpamenn sem spila út jesúspili sínu
Þetta er svo fáránlegt að mar á ekki fargin nægilega sterk orð til að lýsa ruglinu
Þessu liði kom einu sinni til hugar að aðstandendum fórnarlambs myndi sárna við þetta, já og bara öllum íslendingum.
Svona er virðing hinna ofurtrúuðu, fólk skiptir ekki máli í þeirra huga; það er bara ósýnilegi súperkarlinn í skýjunum

DoctorE (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 07:56

40 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Frábær pistill eins og venjulega.
Ég er stoltur af Íslandi og tel mig vera góð "auglýsing" í Svíþjóð.
Baldur Freyr er ekki góð "auglýsing"

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.11.2007 kl. 08:54

41 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Takk Halla, ég bið ekki um meira en vísun :)

Matthías Ásgeirsson, 13.11.2007 kl. 09:29

42 Smámynd: Freyr Hólm Ketilsson

Er ekki fyrirgefningin eitt það stærsta í kristinni trú?
Þetta er spurning ekki fullyrðing.

Freyr Hólm Ketilsson, 13.11.2007 kl. 09:42

43 Smámynd: Sigríður Jónsdóttir

Sæl Halla og þið hin.

Ég skil vel afstöðu þína Halla - en við verðum að gæta þess að dæma ekki.

Ég er búinn að fylgjast vel með Baldri úr fjarlægð og er hann að gera frábæra hluti í dag. Hann hefur farið í gegnum sínar þjáningar - sitt hræðilega myrkur. Hann hefur verið að vinna í sínum málum og gera upp við þá sem hann hefur brotið gegn.

Gleðjumst frekar yfir því þegar menn snúast við og breyta hegðun sinni. 

Það hafa frábærir hlutir verið að gerast og hefur hann verið að hjálpa ílla stöddu fólki að ná tökum á betra lífi. 

Ég horfði á viðtal við hann um daginn á Omega og er vitnisburður hans frábær.

Hann lifði í mirkri, hræðilegu mirkri og hefur þurft að þjást fyrir það sem hann hefur gert. Það sem okkur er kennt í sporavinnufræðunum er að hætta að borga fyrir sekt okkar endalaust. Við sökkvum í skömm og sektarkennd þegar við gerum það. Hann hefur iðrast gjörða sinna og hefur tekið út sinn dóm.

Ég vildi bara pósta þessu hér, við megum ekki gleyma að vondir menn geta farið í iðrun og breytt til hins betra. Það hefur hann sýnt að er hægt, ásamt fjölda annara í heiminum sem hafa borið þungar byrgðar á bakinu - skaða sem þeir hafa valdið öðrum. En það er alltaf hægt að snúa við. Fögnum því.

kv Sirry 

Sigríður Jónsdóttir, 13.11.2007 kl. 12:12

44 Smámynd: Linda

Sigríður ég tek undir með þér, Freyr jú fyrirgefningin er sem logandi þráður í Kristinni trú.

Linda, 13.11.2007 kl. 12:40

45 Smámynd: Ásgerður

Tek undir með Sigríði,,,Baldur virkar mjög heiðarlegur í sínum vitnisburði og ég vona svo sannarlega að hann sé heiðarlegur alveg frá hjartanu.

En þetta með samkynhneigða er að trufla mig,,,,í mínum huga er Guð góður og tekur öllum jafnt,,þá meina ég ÖLLUM

Ásgerður , 13.11.2007 kl. 13:09

46 Smámynd: Mofi

Halla Rut:  Baldur kallar svo samkynhneigða "sora" í sjónvarpinu

Hvaða heimildir hefurðu fyrir þessu?  Ef hann sagði svona hrylling þá hefðu kristnir átt að ávíta hann harðlega og ekki leyfa honum að hafa sig frammi á svona vetvangi. En ég aðeins efast um að hann hafi sagt þetta og langar að sjá eitthvað sem styður þetta.  Þrjú ár er allt of stuttur dómur fyrir að drepa mann, það er bara móðgun við samfélagið og fjölskyldu hins látna. Fyrirgefningin er eitt af því dýrmætasta sem við eigum, er það eina sem getur endað stríð og gefið þeim sem hafa fallið annan séns. Svo það er mjög sorglegt að sjá hérna fólk sem hikar ekki við að rakka niður annað fólk.

Mofi, 13.11.2007 kl. 14:01

47 Smámynd: Halla Rut

Ég held að fólk ætti að lesa pistil minn aðeins betur. Ég segi þar greinilega að hann sé búin að greiði þá skuld við samfélagið sem það gaf honum. Ég segi einnig að gott sé að hann sé ekki í neyslu og að batnandi mönnum sé best að lifa. Vel mælt hjá Sirry, hann er að hjálpa til og gefa sig að því að hjálpa ungu fólki í neyslu og er það gott. Ég er ekki að rakka manninn neitt niður heldur aðeins að lýsa skoðun á athæfi hans sem hann gerir opinberlega og hlít ég að hafa fullan rétt á því. Ég er bara hissa á að hann skuli tala svona til samkynhneigðra og segja þetta göngu á móts við gaypride.

Niðurlag greinar minnar er þó þetta.

Það hlýtur að vera erfitt fyrir foreldra Magnús Freys Sveinbjörnssonar að horfa uppá bana mann sonar þeirra ganga niður aðalgötu Íslendinga með fánan okkar að baki sér, talandi fyrir hönd Guðs og með fylki fólks með sér sem virðist fylgja honum og bera fyrir honum virðingu. 

Batnandi mönnum er best að lifa og hefur Baldur Freyr tekið út þá refsingu sem þjóðin gaf honum.  Það er þó mín skoðun að þegar um iðrun er að ræða þá sýnir maður það í verki með hógværð og góðum verkum og framar öllu skal maður haga athöfnum sínum og hegðun með fyllstu tillitsemi við aðstandendur þeirra fórnarlama sem urðu fyrir barðinu á manni.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 14:27

48 Smámynd: Mofi

Halla Rut, ég er alveg sammála þér en hefurðu einhverjar sannanir eða vitnisburð eða eitthvað um að Baldur hafi kallað samkynhneigða sora? 

Mofi, 13.11.2007 kl. 14:32

49 Smámynd: Halla Rut

Manneskja sá þetta sem ég þekki vel tók þetta  "persónulega" til sín. Ég get ekki sannað þetta enda hef ég ekki aðgang að þættinum. Fjöldi fólks sá þetta ásamt því sem var sagt varðandi að þetta væri ganga í mótvægi við gaypride. Biðjum bara Omega að endursýna þáttinn og þá kemur þetta allt í ljós. Er annars verið að efast um að þetta hafi verið sagt? Er það ekki almenn vitneskja að ofstækis trúar kristnir eru á móti samkynhneigðum. Það kom nú heldur betur í ljós þegar þeirra ganga var hér fyrr á árinu. Þvílík voru skrifin hér á blogginu.

Ég er samt þeirrar skoðunar að hver megi vera með slíkar skoðanir ef þeim sýnist svo. Lít bara á það sem þröngsýni og heimska en mér finnst þetta bara mjög undarlegt í ljósi þess hve sterkur grunur lék á því að glæpur hans hafi verið framin í nafni haturs við samkynhneigða. Ef satt er þá hlýtur maður að spyrja sig hvar er iðrunin, hvar hefur opnast ljós?

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 15:05

50 Smámynd: Mofi

Halla Rut, er nokkur von að einhverjir telja að ofstæki og ofsóknir vera á ferðinni þegar menn gleypa allt sem þeir heyra gagnrýnislaust?  Ég efast um að þessi Baldur hafi sagt þetta enda væri það óafsakanlegt af kristnum einstaklingi að tala þannig um annað fólk.  Tel að við ættum að reyna fá sem bestar upplýsingar um svona mál áður en við tölum illa um fólk á opinberum vettvangi.

Mofi, 13.11.2007 kl. 15:17

51 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir

Ég veit varla hvað skal seigja. En ég er búin að vera að lesa þín skrif Heiðu og Margrétar já og dóttur Heiðu. Ég er í þjóðkirkjunni og Hjálpræðishernum líka og samkvæmt því er ég ofsa-öfga-trú-manneskja.Dómhörð,ósanngjörn og vond. Homma og lesbíu-hatari.Ég er líka fíkill sem snéri við blaðinu. Mér finnst betra að vera á her en í neyslu."þið hin kristnu" er skrifað .  Ég er kristin svo þið hljótið að vera að tala um mig  meðal annars. Ég ætla ekki að tjá mig um Baldur eða morðið.Haukur sonur minn sem lést í fyrra varð næstum því mannsbani og líðan mín var skelfileg á meðan ég hafði ekki ALLAR fréttir af málinu.Fyrir kraftaverk slapp maðurinn heill.Þegar sonur minn dó var ekki vitað í nokkra mánuði hvort hann hefði verið myrtur eða dópið drepið hann. Handrukkari hreykti sér af því á meðan að eiga heiðurinn af morðinu á honum. Morfínið drap hann. Þessi umræða sem hefur verið í gangi er svo sorgleg að hálfa væri nóg.Ég var að velta því fyrir mér hvort þið hélduð að þið væruð að gera ástvinum fórnarlambsins einhvern greiða með þessum skrifum. Það í stjórnarskrá að trúfrelsi er á Íslandi. Við erum dæmd af gjörðum okkar (skrifum). Hver skipaði ykkur dómara? Og þú segist ekki vera að rakka manninn niður? Hógværð í góðum verkum ? Þínum og vinkvenna þinna þá? Ekki ertu að meina mig og mína ofsatrúarvini á her?Ef hann er búinn að greiða skuld sína við samfélagið hvaða tilgangi þjónuðu öll þessi skrif þá?

Birna Dis Vilbertsdóttir, 13.11.2007 kl. 15:29

52 Smámynd: Halla Rut

 BIRNA

Ég hef ekkert út á kristna að setja enda ber ég virðingu fyrir lífsvali annarra hér hef ég verið að tala um öfgatrúaða sem er allt annar handleggur. Hvort þú ert öfgatrúar eða ekki Birna veit ég ekki um. Best tæjist það á t.d. viðhorfi þínu til samkynhneigðra og þeirra göngu "gaypride" Gott að heyra hvað þú hefur unnið vel úr þínum málum og sorglegt að heyra um son þinn. Votta þer samúð.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 16:04

53 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Það er einmitt málið Birna Dís, ég hef einnig verið stimplaður "ofsatrúar" og menn hafa skeggrætt víða um bloggið hversu "hatursfullur" ég er sem og önnur trúsystkini mín. Sem er helber lygi, spyrjið hvern þann sem þekkir mig og hin trúsystkinin.

Að stilla þessum Baldri Frey upp sem ábyrgðarmanni göngunnar er einnig algjörlega fráleitt, ég bendi á að það voru ALLIR trúarsöfnuðir sem stóðu að þessari göngu og var HVERGI minnst á samkynhneigð, hvorki í auglýsingum né í göngunni sjálfri, þess vegna skil ég ekki afhverju þessar nornaveiðar eru á hendur Baldurs Freys, ekki það að hann framdi ódæðisverk sem ég reyni ekki að réttlæta, en eins og Halla hefur bent á, þá hefur hann gert betrumbót og þar liggur hnífurinn í kúnni. Eins og Freyr Hólm bendir á hér ofar, þá heitir það fyrirgefning.

Það sem ég á við er að það sem gleymist í þessu er það góða sem þessi ganga gekk útá, þetta gekk ekki útá samkynhneigða né Baldur Frey, þetta gekk útá að kristnir sameinuðust undir merkjum Krists og er það aðdáunarvert framtak, bilið á milli kirkjudeilda var hunsað og ALLIR komu saman sem einn söfnuður undir Guði. Það eitt finnst mér vera kraftaverk útaf fyrir sig, að ná þessum ólíku söfnuðum saman.

Horfum á það sem gott er líka við þetta, ekki bara grafa upp skít á aðra.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.11.2007 kl. 16:07

54 Smámynd: Halla Rut

AF VERKUNUM ER MAÐUR DÆMDUR segir Baldur Freyr í kastljósi þann 7. nóvember síðast liðinn. Mikið rétt hjá honum og við skulum sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 16:22

55 Smámynd: Linda

Sammála Birnu, það sem hér er skrifað er til háborinnar skammar og ég vona svo sannarlega að engin sem hefur setið dóm hér yfir manni sem hefur iðrast og afplánað sinn dóm muni þurfa sitja undir öðru eins og hér fer fram gegn honum sem og öllu því góða fólki sem sameinaðist um landið og alla sem eiga erfitt eða þjást sakir sjúkdóms eða neyslu í bæn og lofgjörð.

Ég vona að ég þurfi aldrei, nokkurn tíman að sitja undir dómi ykkar sem hér skrifa, því ég yrði gjörsamlega brotin og eyðilögð fyrir vikið, slíkt er hatrið hér inni og þrátt fyrir að ekki sé persónulega ráðsit á mig þá er ráðist á trúaða með öfgafullum orðum sem eru svo ranglát og óréttlát að hálfu væri nóg,  að sálu minni er vegið sakir trúar, því vegið er að þeim sem komu fram í réttlæti og kærleika fyrir land og þjóð, en eitt er þó víst að mér ber að fyrirgefa hverjum einasta einstakling hér inni sem og á öðrum bloggum, og mun ég þurfa að sækja beint í almættið til þess, því ekki verður þetta mér auðvelt, en allt megna ég með Guði mínum.

Halla mín, ég vona að þú vitir hvað ég á við, ég held að þú þekkir mig nægilega vel til þess að skilja skrif mín, það vill svo til að ég þoli ekki að fólk sé tekið fyrir eða nafngreint hér á blogginu, frekar en í fjölmiðlum, því ég trúi því að slíkt særir lengra en bara einstaklingin, það getur sært alla sem eru í kringum einstaklingin, slíkt er rangt.  En, ég hef sagt mína skoðun og mun ekki tjá mig um það meira hér.

Linda, 13.11.2007 kl. 16:32

56 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir

Mér finnst dökkhært fólk flott,Ljósbrúnn,húðlitur.Ég er gagnkynhneigð og trúuð en það þýðir ekki að ég hati ljóshærða eða rauðhærða,fólk í annarri trú.eða hati svarta eða hvíta eða samkynhneigða. Við sem vorum í þessum vinnuhópi erum dæmd af þér og vinum þínum fyrir orð eins manns af 25 sem komu að þessu máli. Og allir kristnu söfnuðirnir kallaðir öfgatrúarhópar.Líka HERINN. Orð sem ekki einu sinni voru höfð rétt eftir.Lestu yfir ALLAR FÆRSLUR VINKVENNA þinna og  rétt er það að við erum dæmd af verkum okkar (SKRIFUM). En þú svaraðir ekki spurningunni HVER GERÐI YKKUR AÐ DÓMURUM? Ég styð heilshugar réttindi allra manna og kvenna. Ekki bara sumra með skilyrðum.Þetta verða mín lokaorð í þessari lágkúrulegu umræðu.

Birna Dis Vilbertsdóttir, 13.11.2007 kl. 16:49

57 Smámynd: Linda

Please fyrirgefið mér, ég veit ég sagist ætla að láta það sem ég skrifaði hér fyrir ofan vera mín lokaorð, en svo sá ég það sem Bryndís skrifar og ég varð krosseygð af hneykslun.  Svo skulum gera þetta eina ferðina en svo allir skilji.

"GANGAN VAR GEGN MYRKRI OG NAUÐ Í LANDINU" ekki gegn SAMKYNHNEYGÐUM. 

Linda, 13.11.2007 kl. 17:26

58 Smámynd: Sólveig Lilja Óskarsdóttir

W.W.J.D. What would Jesus do? Walk with Jesus daily...

Jésús segir í jóhannesarguðspjalli 8:7 "Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum" og í 8:11 "Jésú mælti: "Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú, syndga ekki framar."

Sólveig Lilja Óskarsdóttir, 13.11.2007 kl. 18:24

59 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Það hafa margir vitnað um að BF sagði á Ó me gagaga að það þyrfti að skipuleggja göngu gegn GayPride, nokkurs konar PrayPride. Þar kallar hann GayPride "soragöngu". Menn þurfa að vera ansi einfaldir til að skilja þetta á einhvern annan hátt en að samkynhneigð sé sori, samkynhneigðir sori og þeirra athafnir sori. Þetta er ekki eitthvað sem þarf að sanna. Horfið bara á Ó me gaga, það vantar ekki endursýningarnar á þeim bænum.

Páll Geir Bjarnason, 13.11.2007 kl. 18:30

60 Smámynd: Linda

Það er engin að reyna leiða neitt undir rós, þvílík fyrra, en, svo ég segi það eina ferðina en, þá var þetta ekki ganga gegn samkynhneigð og var ekki auglýst þannig, mörg trúfélög komu að skipulagningu göngunnar, margt fólk frá mismunandi söfnuðum, Baldur var einn af mörgum sem komu að henni.  Hefðu samkynhneigðir gengið með okkur, sem einhverjir gerðu e tv. þá hefðu þeim verið tekið eins og hverjum öðrum, vel og með kærleika og án fordóma, við erum öll ófullkomin, en við göngum saman vegna þess að við elskum Jesú.   Ég veit að það virðist auðveldara að trúa illu upp á fólk eða segja ill um það sem var gott, hverjum er það til sóma, nákvæmlega engum.

En, ég get ekki staðið í þessu, ég held að það sé best að halda sig frá frekari umræðu um þetta mál hér á þessum þræði, fólk trúir því sem það vill trúa, og ég fæ því ekki breytt með mínu aumu orðum. 

Linda, 13.11.2007 kl. 19:03

61 identicon

jæja þetta er komið gott af allri þessari umræðu enginn trúaður en allir horfa ÓMEGA OG VITA NÁKVÆMLEGA HVAÐ BALDUR FREYR SAGÐI. Hér er mikið hatur og þarf að losa um leitið að kærleikanum eins og hann hittir ykkur hvort það er í gegnum einhverja trú eða annað elskið hvern annan. Góðar stundir.

inga (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 19:14

62 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvernig ferðu að því að fá svona mikil viðbrögð á síðuna þína, ég las í gegnum öll kommentin, og verð að segja: Það er oft á tíðum ekki heil brú í þeim. Ég hef engan áhuga á því að taka umræddan mann af lífi, en ég get svo svarið það, fólk sem heldur að með því að taka biblíuna sér í hönd, sé því fyrirgefið.

Ég þykist vera kristinnar trúar, allavega finnst mér kristin siðfræði höfða til mín, og „Gullna reglan“ er sú regla sem ég reyni að fara eftir. Ég er sáttfús manneskja og ekki langrækin, en ef sonur minn eða dóttir, hefði orðið fyrir því að aka drukkin sbr. þvagleggsmálið, drepa, öllu heldur murka lífið úr annari manneskju, þá vildi ég óska að þau gætu sýnt auðmýkt. 

Ég held að það sé það sem Halla er að segja í sínum pistli, henni finnst að hana vanti í umræddan morðingja og til að útskýra þetta betur, þá hef ég eftir henni orðrétt
„Það er þó mín skoðun að þegar um iðrun er að ræða þá sýnir maður það í verki með hógværð og góðum verkum og framar öllu skal maður haga athöfnum sínum og hegðun með fyllstu tillitsemi við aðstandendur þeirra fórnarlama sem urðu fyrir barðinu á manni.“

Ég er henni hjartanlega sammála, og finnst hún allsekki hafa farið yfir strikið, mér finnst hún bráðglögg, og vildi óska þess að hún styddi réttan stjórnmálaflokk, þeir sem fara hér offari í gagnrýni á hana, ættu að lesa pistilinn betur, og reyna að fara í spor foreldra drengsins sem var myrtur,  samúð mín er hjá þeim.

Svo er Halla Rut stundum alltof umburðarlynd, sbr. í hinu svokallaða þvagleggsmáli.

En eitt verð ég þó að leiðrétta í skrifum Höllu, ég er ekki skotin í henni, en væri það svo sannarlega ef ég væri karl eða lesbía. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.11.2007 kl. 19:43

63 Smámynd: Halla Rut

Linda ég hef aldrei sagt að ég væri á neinn hátt á móti þessari göngu, ég bara skil ekki hvernig fólk fær það út. Enda væri ég þá með fordóma gagn vart fólki sem trúir á Guð og er ég það ekki. Hver hefur rétt á að trúa á hvað sem hann vill á meðan hann ónáðar ekki aðra.  Boðskapur göngunnar var án efa vel meintur.  Ég hefði þó ekki verið sátt við að þessi maður væri einn að forsvörum fyrir gönguna ef ég hefði verið þáttakandi í þessu með ykkur. Hér er ég að velta fyrir mér viðhorfi mans sem er einn aðalmaðurinn í þessari göngu til samkynhneigðra og kemst maður ekki hjá því að leiða hug að glæpum hans sem er svo stutt síðan að hann framdi.

Mér finnst oft þegar ég skrifa hér að comment annarra á minni síðu eru gerð að mínum. 

Ingibjörg....Þetta var nú bara grín hjá mér....Og ég veit að þú veist það.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 21:10

64 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, og ég tar igjen.

Annars er ég að koma frá sóknarkirkjunni minni, sem er Bústaðakirkja.

Þar var samankomin múgur og margmenni til að knýja á um að byggð verði sundlaug í okkar ágæta hverfi 108.

Amen á eftir orðinu. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.11.2007 kl. 21:16

65 Smámynd: Halla Rut

LINDA (ég held mikið uppá þig hér á blogginu svo þú vitir það)

ÞÚ SEGIR:Hefðu samkynhneigðir gengið með okkur, sem einhverjir gerðu e tv. þá hefðu þeim verið tekið eins og hverjum öðrum, vel og með kærleika og án fordóma, við erum öll ófullkomin, en við göngum saman vegna þess að við elskum Jesú. Ertu að segja að samkynhneigðir séu ófullkomnir eða kemur þetta bara illa út hjá þér?

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 21:16

66 Smámynd: Halla Rut

Þakka þér fyrir Ingibjörg .... þetta er nákvæmlega það sem ég er að reyna að koma hér fram en það er eins og fólk lesi ekki það sem maður er að skrifa.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 21:23

67 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Jesús Pétur í allan vetur, þetta er svo fyndið að hér sit ég og græt og get ekkert annað.

Hver á hvað og hvers er hvurs. Engin okkar meðbræðra eða systra er fullkomin, þannig að hommarnir og lesbíurnar eru ófullkomnir, svo það er bara gott ef þeir labba, rölta, eða bara ganga með hinum ófullkomnu bræðrum sínum og systrum. Við sem erum þokkaleg í stærðfræði, vitum að tveir mínusar verða að plús.

Get upplýst bloggarana um að stjúpsonur minn er hommi, tengdasonur minn er svartur og helmingur barnabarna minna eru múlattar.

 Ást og hamingja í boðinu´, og takk kærlega Halla mín að bjóða mér.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.11.2007 kl. 21:24

68 Smámynd: Vigfús Pálsson

Linda.  Þú átt bágt.  Síðasta innlegg þitt er ógeðslegt.

Að halda því fram að þegar Ingibjörg Friðriksdóttir ritar að við erum öll ófullkomin,  þá eigi hún sérstaklega við samkynhneigða.  Mig skortir ímyndunarafl til að skilja sálarástand þitt.

Vigfús Pálsson, 13.11.2007 kl. 21:33

69 Smámynd: Vigfús Pálsson

Þar sem ég get ekki breytt fyrra innleggi mínu,  þá verð ég að taka til strax til baka það sem ég var að rita til Lindu.  Ég biðs innilega afsökunar á því.  Mínu innleggi var svo sannarlega beint til Höllu Rut.

Vigfús Pálsson, 13.11.2007 kl. 21:36

70 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Vigfús, klukkan er að verð tíu, kannski þú ættir að leggja þig og koma svo til leiks í fyrramálið

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.11.2007 kl. 21:43

71 Smámynd: Halla Rut

Vigfús þú hefur nú líka hitt nafnið rangt en það var Linda sem skrifaði þetta og er ég að spyrja hana út í hvað hún er nákvæmlega að meina og er hún fullfær að svara því.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 21:55

72 Smámynd: Vigfús Pálsson

Þetta er nú ljóta klúðrið sem ég hef komið mér í.   En innihald fyrsta innleggs míns stendur óhaggað.  Ég biðst margfaldlega forláts á afar meinlegum nafnaruglingi.

Vigfús Pálsson, 13.11.2007 kl. 22:39

73 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég skil þig, það er svo gaman á síðunni hennar Höllu Rutar, að maður missir sig og þráðurinn verður stundum slitróttur og þá er hætta á allslags ruglingi, en það er nú hægt að fyrirgefa allt svoleiðis.

 En ég segi nú bara, að stundum fer fólk svo illa að ráði sínu, að ekki einu sinni ég, sem þykist bara djéskoti góð, get fyrirgefið.  Sumir eiga að „halda lágan prófíl“ jafnvel allt sitt líf.  Er það kannski til of mikils mælst þegar þeir hafa drepið mann og eyðilagt líf margra annarra.

Nú er ég að fara í háttinn, og þó fyrr hefði verið, því sumir vilja fá Fréttablaðið sitt á réttum tíma eða fyrir klukkan 07:00

Góða  nótt!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.11.2007 kl. 22:46

74 Smámynd: Linda

Já Halla Rut ég er að segja að samkynhneigðir eru ófullkomnir, eins og ég eins og þú, eða telur þú þig vera fullkomna Við höfum öll okkar galla og breyskleika, við erum jú bara mennsk, slíkt fylgir.  Please ekki snúa þessu út í kynhneigð það er ekki sem ég er að meina, hjálpi mér allir  englar, ég verð krosseygð yfir svona bulli, nú ef þú vissir hversu "gölluð" sjón mín er þá mundir þú vita að það er ekki á það bætandi. ég veit að ég á ekki að þurfa minna þig á að engin er fullkomin, er það nokkuð, þ.a.s. fyrir utan einn og hann var svo réttlátur að hann talaði um að Guð væri eini sem væri fullkomnlega góður og réttlátur.  En ég er búin að segja mitt, og ef það verður misskilið þá nær það bara ekki lengra. 

Linda, 13.11.2007 kl. 22:50

75 Smámynd: Linda

og svona í lokin tíhi, sorry, ég bara vildi segja Góða nótt og ég bið ykkur öllum blessunar og vona að þið takið við henni í þeim kærleika sem hún er gefin. 

Linda, 13.11.2007 kl. 22:57

76 Smámynd: Halla Rut

Já góða nótt Linda og aðrir skrifarar.

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 23:02

77 identicon

Gaman að þessu!

  Nei, ég hef ekki verið heilaþveginn af trúarbrjálæðingum.

  Þegar maður les yfir sumar aths. hérna þá skilur maður af hverju maðurinn er eins og hann er og stríð og illdeilur manna á milli alls staðar. Það þrífast hreinlega sumir á rógi fordómum gagnvart öðrum manneskjum.

    Já, Halla þú ert bitur, og allir sjá það. Bloggbræður og systur verja þig náttúrulega, annars væri mér brugðið!!

  Ég get samt lofað þér að ég er algjörlega casual bystander.

  ....Reyndu frekar að vinna í þínum eigin málum, heldur en að ausa úr skálum biturleika og innbyggrar reiði, þú ert allavega ekki vitlaust, ólíkt all mörgum skoðanasystkynum þínum.

   ....mér fannst þetta bara svo týpískt. Ég heyrði um þessa göngu, og síðan óvart fór ég inn á síðuna þína, og þetta kom mér svo innilega ekki á óvart.

Pétur (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:12

78 identicon

Ég ætla ekki að verja Baldur Frey. Dettur það ekki hug, en hins vegar að benda á að hann fékk 6 ára fangelsi en ekki 3. Auk þess var hann ekki dæmdur fyrir morð, heldur alvarlega líkamsárás sem leiðir til dauða. Á þessu er mikill munur. Sá sem fermur morð með ásetningi fær lang oftast 16 ára fangelsi nema hann hafi sér einhverjar málsbætur eða þá að það hafi verið þeim mun hrottalegra þá sjást dómar eins og 18 ára fangelsi. 20 ára fangelsi er held ég ekki algent. En ævilangt hefur ekki verið dæmdt í Hæstarétti þó svo að það hafi verið gert í héraði.

Þannig ég bið fólk að gera tilraun til þess að kynna sér málin áður en það fer að koma með frasana um hversu lélegt dómskerfið sé á Íslandi.

réttlæti (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:30

79 Smámynd: Halla Rut

Pétur af hverju heldur þú að ég sé svona bitur?

Þú kemur hér nafnlaus og talar um að ég þurfi að vinna í einhverjum persónulegum málum sem þú lætur sem þú þekkir til. Þetta finnst mér ákaflega dónalegt. Á þessu bloggi hef ég fjallað jafnt um persónuleg mál sem og almenn mál. Ég hef ekkert að fela og er ekki bitur og er ekki reið, ég hef engin sérstök mál að vinna í nema það sem kallast daglegt líf. Kannski ert þú að tala um þá baráttu sem ég hef staðið í vegna sonar míns en mér finnst það ákaflega skrítið ef fólk telur foreldra bitra og með innbyggða reiði ef það fer fram á réttindi fyrir fötluð börn sín.  

Halla Rut , 13.11.2007 kl. 23:33

80 Smámynd: Halla Rut

Réttlæti: Þetta er ekki rétt hjá þér. Hann hlaut 3 ára dóm.

Tekið upp af Morgunblaðinu daginn eftir að hann hlaut dóminn í maí 2003:

Baldur Freyr er dæmdur í þriggja ára fangelsi og að auki fyrir tvær aðrar líkamsárásir umrætt kvöld. Er hann dæmdur til að greiða þeim sem fyrir árásunum urðu skaðabætur.

Sjá hér. 

Halla Rut , 14.11.2007 kl. 00:02

81 identicon

  Fordómar eru fordómar... Sé ekki mun á fordómum gagnvart samkynhneigðum og fordómum gagnvart "öfgatrúarfólki". Vörumst að dæma aðra fyrir fordóma með fordómum.

Elís (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 00:16

82 Smámynd: Halla Rut

Góður punktur Elís.

Halla Rut , 14.11.2007 kl. 00:42

83 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Góður pistill hjá þér Halla Rut.

Ég bloggaði um þessi málefni sjálf og fékk mikil viðbrögð.

Baldur Freyr kom fram í þætti á Omega í ágúst sl. og margir eru búnir að staðfesta það. Hann er upphafsmaður bænagöngunnar. Sagði að gangan væri svona andsvar við Gay Pride, sem væri soraganga. Hann er víst oft búinn að úthúða samkynhneigðum í vitna viðurvist.

Þannig að rótin að göngunni er rotin.

Forkólfar Omega,  Eiríkur og Magnús voru með endurtekinn þátt á laugardagskvöldið og voru m.a. að spjalla um gönguna. Þeir sögðu að bænaganga væri nauðsynleg af því að það væri svo mikið um kynvillu og trúvillu á Íslandi.  Þennan þátt sá ég. Restina af þættinum voru þeir að betla peninga af fólki í Jesú nafni eins og þeim er svo tamt.

Það er samdóma álit þeirra sem hafa með áfengis og eiturlyfjafíkla að gera, að eftir 6 mánaða bindindi er menn engan veginn hólpnir og hvað þá í stakk búnir til að takast á við trúaröfga.

Varðandi samkynhneigða og ást ofurtrúaðra á þeim, þá segjast þeir elska samkynhneigða en hata syndina. Kynhneigð þeirra er synd að þeirra mati, þótt hún sé meðfædd.  Þetta finnst mér hræsni og hroki.

Varðandi "frelsun" Baldurs Freys, þá er þetta bara trúarvíma og að maðurinn skuli berast svona mikið á segir bara að hann hefur ekki vott af auðmýkt eða lítillæti og hann lítur á sig sem bjargvætt fólks. Ég vildi ekki að hann kæmist með klærnar í samkynhneigða unglinga og reyndi að "snúa" þeim eða "Lækna" þá af syndinni og mér finnst bara skelfing að þessi trúarofstækissöfnuður hans fái að grassera.

Vil benda á það að það hafa orðið sjálfsvíg hjá ungu samkynhneigðu fólki sem hafa lent í klónum á öfgatrúuðum sem reyna að afhomma og aflesbíu það með andlegu ofbeldi.

Mér finnst þessi þróun skelfileg og Það fólk sem tekur þátt í svona öfgatrú og öfgafullum leik með veikt og viðkvæmt fólk bara bilað.

Öfgatrúaðir líta mjög margir á veikindi fólks sem illan anda sem þurfi að reka út. Það sama gildir um kynhneigð samkynhneigðra.

Ég vil að fólk geri sér grein fyrir því hvað þetta er hættulegt og ráðist gegn svona viðbjóði.

Þið ofurtrúuð sem kíkja hér inn, farið í naflaskoðun!

Kveðjur. 

Margrét St Hafsteinsdóttir, 14.11.2007 kl. 00:57

84 Smámynd: Fríða Eyland

Þá er dómur fallinn Halla er bitur, pang.......öfgatrúarfólk getur verið samkynhneigt, pang........myrku miðaldir eru nefndar svo vegna valds ofsatrúar 1000 ár var kirkjan við völd....pang..dómur löngu fallinn Halla ég þakka þér fyrir gott innlegg í erfiða umræðu, falleg hugsun til þeirra sem mest misstu ég nota tækifærið og geri það einnig

Kveðja 

Fríða Eyland, 14.11.2007 kl. 01:01

85 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Aumingja fjölskyldur þessara manna núna.  Ég verð að vera sammála Höllu að það var mjög eigingjarnt af Baldri að fara í þessa göngu og leiða hana. 

Vonandi vanhugsað og hann ekki gert sér grein fyrir þeim afleiðingum sem hún hefur haft.  Nöfn þessara tveggja manna er alls staðar og sársaukin er dregin upp aftur. 

Kannski af virðingu við aðstandendur þeirra beggja ætti fólk að leggja þetta viðkvæma og sára mál til hliðar og ekki tala um það meir hér á blogginu.  Greinilega margar sárar tilfinningar í gangi. 

Kannski væri réttar að skrifa þessum aðilum bara bréf og biðja þá að gæta sín í framtíðinni eða hvað? 

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 14.11.2007 kl. 02:37

86 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Þetta er mjög heilbrigð og góð tillaga Nanna...

Páll Geir Bjarnason, 14.11.2007 kl. 05:10

87 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Sammála N0nnu og Páli, finnst eiginlega nóg komið.

Vonandi hefur þetta samt vakið einhverja til umhugsunar um hugtökin: réttlæti, virðing, tillitssemi, auðmýkt og hógværð.

Óska ykkur öllum velfarnaðar í dag, jafnt sem aðra daga um leið og ég lýsi tilhlökkun minni yfir næsta bloggi frá Höllu Rut.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 14.11.2007 kl. 07:04

88 identicon

Þetta er héraðsdómurinn. Þetta eru dómsorð Hæstaréttar: í máli 235/2003:

Ákærði, Baldur Freyr Einarsson, sæti fangelsi í sex ár, en frá refsivistinni skal draga gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 26. maí 2002.

Hér er sakfellt fyrir stórfellda líkamsárás en ekki morð 

réttlæti (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 07:14

89 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þú sem ert málsvari og ímynd réttlætis, ættir nú að koma fram undir nafini. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 14.11.2007 kl. 07:28

90 identicon

Fyrir mig þá er liðið í kringum Omega engu skárra en Hells Angels; really
Sakfellt fyrir líkamsárás, það er bara rangt ef fórnarlambið lætur lífið... that really sucks

DoctorE (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 08:43

91 Smámynd: Halla Rut

  • RÉTTLÆTI: Takk fyrir ábendinguna, ég sé það núna að dómur hans var tvöfalldaður af hæstarétti. En hann hefur greinilega ekki setið allan dóminn af sér þar sem 2002 mínus 2007(eða 2006 er ekki viss hvenær hann var látin laus) eru bara fimm.
  • DoctorE.  Ég fæ nú mestu klígjuna þegar þeir hjá Ómega eru að betla fé af fólki. Það kom nú eitt sinn í fréttum Sjónvarpsins að þeir voru að lofa fólki hamingju og lausn allra þeirra mála ef það mundi borga. Þeir breyttu þessu nú aðeins eftir það. 

Halla Rut , 14.11.2007 kl. 10:27

93 identicon

Já, Halla það er akkúrat ástæðan, hef reyndar verið í svipuðum sporum og þú , þannig að ég þekki þetta nú að e-u leyti.

   Málið er samt að það virðist vera að sumir sem koma hérna inn á síðuna virðast gjörsamlega vera búnir að tapa sér, svo algjörlega veruleikafyrrtir að vera í vísa í miðaldir, og sértrúarsöfnuði hægri vinstir, og þykjast standa fyrir e-t manngildi. Ég held einfaldlega að það sér fyrir neðan þína virðingu að æsa svona fólk upp. 

    Það er reyndar kannski hægt að líta á það sem svo að það gerir kannski ekki neitt af sér, og sá sem les ýmsar athugasemdir hérna sér greinilega að hér er á ferðinni andlega veikt fólk þó misjafnlega

   .....ég held reyndar að þetta fólk sem kemur harðast fram, er akkúrat það sem er í sigti sértrúarsafnað, ætli það sé ekki ástæðan fyrir óöryggi þeirra

    farvel,

Pétur (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 15:38

94 Smámynd: Guðjón Jónsson

Morð + 2 líkamsárásir = 3 ár í fangelsi? Þetta er hlægileg refsing.

En já, ég vil votta aðstandendum Magnúsar minnar dýpstu samúðar.

Guðjón Jónsson, 14.11.2007 kl. 15:52

95 Smámynd: Halla Rut

Hann fékk reyndar 6 ár því Hæstiréttur lengdi refsinguna um helming.

RÉTTLÆTI: Hér á undan sagði okkur að athuga að hann var sakfellt fyrir stórfellda líkamsárás en ekki morð og vil ég í framhaldi af því taka fram að sama ár réðst sá maður er hér um ræðir á annan ungan mann og slasaði hann svo mikið að hann var í bráðri lífshættu. Ef dómskerfið ynni á eðlilegum hraða þá hefði Baldur Freyr setið inni á Hrauni fyrir þann glæp og sá maður er látin er nú verið á lífi.  

Hann, sem sagt, banaði einum á meðan hann beið dóms yfir að næstum því bana öðrum, með sama hætti.  

Hér getur sá er áhuga hefur lesið: http://www.haestirettur.is/domar?nr=2477&leit=t 

Ef Baldur Freyr er hættur í neyslu þá óska ég honum og öllum öðrum sem byggja þetta land til hamingju. Ég vona bara innilega að hann fari vel með þau ungu líf sem eru að leggja sig í hendur hans nú. AMEN.

Halla Rut , 14.11.2007 kl. 16:25

96 Smámynd: Halla Rut

ps: En hann sat auðvitað ekki inn í 6 ár það er augljóst. Verknaðurinn var framin árið 2002 og nú er 2007 = einfallt reikningsdæmi.

Halla Rut , 14.11.2007 kl. 16:27

97 identicon

komið sæl ég las í gegnum allann pakkann hér að ofan ýmislegt er rétt og margt mistúlkað t.d. gangan var EKKI gegn samkynhneygðum heldur gegn myrkri og neyð sem liggur yfir landinu sjáið t.d. allar þessar hryllilegu nauðganir eða misnotkaninar á þeim saklausustu í þjóðfélaginu okkar þ.e.a.s. börnunum og eiturlyfin sem valda mörgum myrkraverkum. ÞÁ spyr sá sem ekkert veit (þ.e.a.s. ÉG ). Meiga ekki hinir trúðu koma saman láta bera á sér ganga saman og biðja saman gegn þeirri neyð og því myrkri sem liggur yfir þessu landi athugið hvað dánartölur hefur fjölgað yfir þá sem gefast upp á lífinu sjálfsmorð og nefni ekki hvað eiturlyfin hafa tekið marga eða ollið brottfalli annarra.

Með gönguna að hún hafi verið á móti samkynhneigðum GARRRGG Þvílík vitleysa Ekki voru einhver kröfuspjöld í göngunni um að Guð Elski einungis bara rauðhært fólk eða bara straight fólk Ég persónulega sá samkynlegt fólk vera í göngunni. Bænagangan gegn myrkri og neyð var undirbúinn af mörgum aðillum og úr öllum stéttum þjóðfélagsins allveg frá því lægsta stigi þjóðfélagsins þ.e.a.s. frá FYRRVERANDA refsifanga og upp í háskólamentað fólk lækna presta ofl og úr flest öllum trúfélögunum meira að seigja tóku þátt allavegana tveir Biskupar mikilsmetnir í þjóðfélaginu.

Mig langar að nefna með Bald Frey því að hann er víst orðin að bitbeini hér í þessum skrifum að ofan. Hann fékk sinn dóm (eins og margir aðrir eiginlega flestir sem sitja (og hafa) á hrauninu og í öllum fangelsunum á ísland eru þar vegna glæpa sem voru gerðir í dópvímu.)

B.F. sat sinn tíma 2/3 af þeim sex árum sem hann var dæmdur. Enn lausn af hrauninu er samkv.lögum metið í hverju tilviki hvers fanga af fangelsisstofnun.

Það er ekki B.F. að kenna að dómskerfið okkar er svona eins og það er. Að hann hafi verið "bara 4 ár" á hrauninu.

Munum að hann sat inni fyrir hryllilega líkamsárás sem hann gerði með öðrum aðilla í dópvímu. ekki vísvitandi morðárás (dópið er eitt af mörgum myrkrum í þessu þjóðfélagi..) skemmur fleiri enn bara fíkilinn..

Reynum frekar að Elska náungan eins og okkur sjálf þótt að það sé erfitt og trúið mér ég veit að það sjálfur að það er Hrikalega erfitt því að ég hef sjálfur lent í því að hata einstaklinga fyrir það sem þeir gerðu mér.. Já það sem þeir gerðu var satt að segja fyrir algjört sálarmorð.. því að hatrið sem ég bar í garð Þeirra einstaklinga kom ekkert niður á þeim... það eyðilagði bara mig sjálfan að innan.. tók mig já 15 ár að GEFA þeim fyrirgefningu já núna telja margir sem lesa þetta að nú er ég allveg ga ga að gefa fyrirgefningu enn þvílík lausn að geta sagt að ég sé laus við þetta hatur sem gerði bara mann sjálfan svartann að innan..

ég veit að þessi pistill minn er svona hægra og vinstra meginn útaf vellinum enn ég vona að þið skiljið það sem ég er að fara..

munum að líf og dauði er á tungunar valdi líka á þessum velli... því eins og er sagt í guðs orðinu að við munum verða hissa hverja við munum hitta á himnum... og að við getum ekki vigtað trú annarra.. munum það að að af verkum okkar munum við verða dæmd á hinum hinsta degi.

bestu kveðjur Vona að ég hafi ekki sært engan það var ekki ætlun mín .. Árni Hill

árni hill (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 02:58

98 Smámynd: Halla Rut

árni hill Takk fyrir þetta. Ég veit vel að flestir sem fóru í þessa göngu fóru í hana með góðum tilgangi eða þeim að minna á þá sem eiga bágt og minna okkur á hve skeytingalaus við erum við náungan. Ég er hér að segja að Baldur Freyr er ekki sá sem átti að vera einn af þeim sem leiddu gönguna. Það er mín skoðun.

Ég segi hér en og aftur ég er ekki á móti þessari göngu. Mér kemur hún ekki við og kristnir eiga fullan rétt á að beina athygli að sínum skoðunum, og málum yfirleitt eins og allir aðrir. Samkynhneigðir mega það svo því skildu kristnir ekki fá það líka. Svo lengi sem hlutirnir eru gerðir með friði og virðingu fyrir þeim sem kjósa annan lífstíl, eða trú, þá hafa allir rétt á að labba sínar göngur og tala sínu máli. 

Halla Rut , 15.11.2007 kl. 11:56

99 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Ég veit að það var aldrei inní umræðunni hjá fulltrúum þjóðkirkjunnar sem tóku þátt í göngunni að hún væri til höfuðs samkynhneigð. Okkar ástkæri biskup herra Sigurbjörn Einarsson sem flutti bæn við gönguna hefði aldrei tekið slíkt í mál. Gangan var gegn myrkri sem fylgir fíkniefnaneyslu, sjálfsmorðum og öllu ofbeldi. ég fullyrði að henni var aldrei beint gegn samkynhneigðum, þótt svo að gantast hafi verið með að kalla hana Pray pride sem þýðir lauslega bæna stolt. þá var það einungis orðaleikur

Það sýnir ekki ávexti Heilags Anda að ráðast að samkynhneigðum með þessu ofstæki sem Baldur gerði. En þó svo að ég hafi ekkert með þessa göngu að gera vil ég samt sem áður biðja alla samkynhneigða sem hafa verið særðir vegna hennar innilega afsökunar fyrir hönd kristinna trúsystkina minna.

Guðrún Sæmundsdóttir, 15.11.2007 kl. 12:39

100 Smámynd: Halla Rut

Guðrún Sæmundsdóttir, Ég segi það við þig sem ég hef sagt áður:
ÞÚ ERT SANNKRISTIN.
Þín skrif, og þá hugsanir þínar, eru það sem trú á að ganga út á.

Halla Rut , 15.11.2007 kl. 13:07

101 identicon

Já Guðrún er bara orðin alveg ágæt, segi það og skrifa.

DoctorE (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 14:07

102 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Já takk Guðrún (I Sigurbjörn....alltaf gert!)

Kær kveðja 

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.11.2007 kl. 14:47

103 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Takk fyrir skrifin Halla Rut

Þessi ganga bar merki heittrúar og krafan um að auka eigi kristinfræði í skólum er ekki góð þar sem hún er nú þegar með mjög mikið vægi innan fagsins "Kristinfræði, trúarbrögð og siðfræði".  Þá var einnig krafa um að auka trúarlega starfsemi í skólum sem er í andstöðu við þau mannréttindi barna að fá að vera í friði fyrir trúarhópum og trúboðun á meðan þau eru í skóla.  Það hafa fleiri en einn staðfest að Baldur Freyr hafi kallað samkynhneigða ónöfnum á Ómega en e.t.v. er best að segja sem minnst um hans skoðanir fyrr en maður hefur heyrt þær beint. 

Ég skil ekki hvernig hægt sé að biðjast afsökunar á löndum sínum nema þá helst gagnvart útlendingum.  Ef maður telur sig bera ábyrgð á hegðun þeirra er það gott og vel en hversu langt er hægt að teygja sig í þessu?  Mér finnst það setja þig niður Halla Rut að biðjast afsökunar á hegðun eða fólki sem þú komst ekki nálægt þó þeir séu landar þínir. 

Svanur Sigurbjörnsson, 15.11.2007 kl. 16:04

104 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Veistu það Svanur að þótt ég sé innilega sammála þér þá líknar það sem Halla og Guðrún eru að reyna að gera!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.11.2007 kl. 16:25

105 Smámynd: Fríða Eyland

Hvað með mansalið, hvenær hafði hann tíma til að reka vændishús og dópsölu i húsi safnaðarins ? Hvað þessi maður sat lengi inni er mér ráðgáta...

Pétur, ekki taka þetta til þín ég var að senda Höllu listræna athugasemd.... Þú ert nú vonandi ekki geðlæknir þeir skrifar varla svona "og sá sem les ýmsar athugasemdir hérna sér greinilega að hér er á ferðinni andlega veikt fólk þó misjafnlega ".. Myrkar miðaldir eru notaðar sem hugtak að fólk eigi að læra af mannkynssögunni vinur.

Fríða Eyland, 15.11.2007 kl. 16:26

106 Smámynd: K Zeta

Í landi frelsis eiga allir að fá að ganga og kynna skoðanir sínar, hommar og lesbíur, ofsatrúarfólk, nasistar, rasistar, kommunistar og svona má lengi telja.  Það að mega ekki kynna skoðun þótt hún gangi í berhögg við gildandi lög er líka skerðing á skoðanafrelsi.  Þetta var reynt í Rússlandi fyrir 90 árum og menn gáfust upp einum mannsaldri seinna, þ.e. að banna fólki að mæla gegn gildandi lögum.  Það er farin að koma angi af forræðishyggju hérna sbr. mótórhjólafólkið frá Noregi og áhugi manna á aukinni löggæslu oþh.

K Zeta, 15.11.2007 kl. 16:37

107 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Trúarbragðafræðslan er ágæt eins og hún er í skólum, en ég man ekki eftir að krakkarnir hafi lært um humanisma, spurning hvort að humanistarnir ætti ekki að beita sér fyrir gerð námsefnis um þeirra lífsviðhorf sem að hægt væri að fella inní trúarbragðanámið.

Besta forvörnin gegn ofstæki er fræðsla um trú, ofstæki er oft afleiðing fáfræði. 

En hvað varðar umræðu um samkynhneigða þá er alltaf talað um þá einsog þeir séu einhver einstakur hópur sem lifir í einhverju Gettói. Þau er ekki laus við það frekar en aðrir að þurfa að horfa á ástvini sína í dópi og ofbeldi eins og þessi blessaða ganga átti að vera til að berjast gegn. Ég sakna umræðu um úrbætur og lausnir glæpa og dópfaraldurs. Er löggæslan á réttri leið? Viljum við meira eftirlit, á kostnað einstaklinsfrelsis? t.d. er forsvaranlegt að fara með dóphunda í verslunarmiðstöðvar og skóla og gefa lögreglu heimild til að leita á hverjum þeim sem að hundarnir benda á?

Guðrún Sæmundsdóttir, 15.11.2007 kl. 17:49

108 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég segi nú fyrir mig Guðrún að auðvitað er þetta rétt...við erum manneskjur, samkynhveigðir, en ríkiskirkjan er sá seinasti staður sem ég myndi leyta til...sérstaklega eftir seinasta kirkjuþing!..en gangi þér vel!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.11.2007 kl. 18:50

109 identicon

Sæl Halla Rut.

Það er nóg að gera hjá þér. Halla Rut var að velta þessu máli upp en margir sem hafa heimsótt Höllu Rut hafa misst sig alveg. Ég vil hvetja fólk að lesa athugasemd frá Höllu Rut sem var skrifuð 15.11.2007. kl.11.56.

Ég er sammála henni með Baldur Frey að hann hefði ekki átt að vera í forsvari. Guð er búinn aðfyrirgefa honum en ekki allir og fjölskyldan hans er í sárum. Aðgát skal höfð í nærveru sálar stendur í Guðs orði. Einnig voru orð hans særandi um að samkynhneigð væri sori. Fólk tekur þetta eins og hann hafi sagt samkynhneigðir og er ég búin að lesa blogg þar sem var velt upp um Svertingja og svertu. Kommon. Baldur Freyr er ungur í trúnni og þarna var greinilega um barnaskap að ræða að segja þetta. Ég tek það fram að ég er glöð að Baldur Freyr hafi iðrast synda sinna og fengið fyrirgefningu Jesú Krists.  Ég vona að öll trúfélög læri nú á þessu og hætti að láta börn vera í fremstu víglínu ef ég má orða þetta svona. Nýfrelsaðir þurfa að fá uppeldi eins og kornabörn.

Við höfum öll lesið um Barnakrossferðina sem var á 13 öld. 50.000 þúsund börn frá Evrópu fóru á stað í Krossferð til landsins helga. Þetta voru tveir hópar. Sum af börnunum náðu að komast til Ítalíu og þar var þeim rænt og mörg þeirra seld til Afríku. Hvað voru foreldrar þessara barna að hugsa? Þau sendu börnin sín út í opinn dauðann. Sjá t.d. vísindavefinn. Vona að forráðamenn trúfélagana fari að passa betur sín andlegu börn.

Ég veit að þetta er rangt að Bænagangan hafi verið farin gegn samkynhneigðum. Getur vel verið að einhverjir fáeinir hafi hugsað það en það eru þá mjög fáir. Ég á vini sem eru samkynhneigðir. Þetta fólk verður að velja sjálft en ég veit alveg að þetta líferni er ekki kristilegt. En ég á ekki að dæma og ég á að koma vel fram við fólk sem er samkynhneigt. Þau eru ekkert verri en annað fólk.

Það er ekki heldur kristilegt að stela, ljúga, nauðga, nauðga börnum, halda framhjá gagnhneygðum maka sínum og ég tala nú ekki um að fremja morð.   Er ekki ógeðslegt þegar fólk fer á súlustaði , vændishús og hvaða nöfnum sem þessir staðir heita? Sumt af þessu fólki er í heilögu hjónabandi og fer án maka og án vitundar maka. Hvers vegna að hamra bara á samkynhneigð.

Hvernig væri nú að fara í slökun. Ég hef farið í svoleiðis þegar ég var á Kristnes og hef ég verið þar tvisvar. Konurnar sem vinna þar mundu hvað ég þoldi illa slökun í seinna skiptið þó það hafi liðið nokkur ár á milli!! Þær höfðu gaman af. Ég man eftir einni konu sem var ekki vön að hafa slökun. Hún sagði: "Anda djúpt, halda halda, halda, halda. anda frá sér." Við hlógum svo á eftir. Við héldum að konan ætlaði alveg að ganga frá okkur að halda andanum svona lengi.

Tek það fram að ég mun ekki taka þátt í þessum umræðum meira. Treysti Höllu Rut að stjórna.

Halla Rut. I like you very much, you know that.

Verið þið nú öll blessuð og sæl og drífið ykkur í slökun.  

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 23:47

110 identicon

Hæ aftur. Þegar ég færði þessa færslu yfir í outlock þá sá ég að ég skrifaði vitlaust "gagnkynhneigðum" Hér er þetta sennilega rétt.

Guð gefi ykkur góða nótt og góða drauma. Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 23:55

111 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir þetta Rósa.

Halla Rut , 16.11.2007 kl. 11:36

112 identicon

Svona getur Drottinn notað það sem ekkert er, þeir sem hafa verið minnstir í mannlegu samfélagi, þeir sem þekkja þjáninguna og myrkrið af eigin raun. Ég þakka Guði fyrir að hafa ekki orðið manni að bana, en hef oft velt því fyrir mér hvort að einmitt þá hrópi maður ekki til Guðs og grátbiðji Hann um taka atburðinn til baka ...ekkert skeður og maður gerir sér grein fyrir því að EKKERT tekur atburðinn/morðið til baka. þá tekur þjáningin um það að vilja ekki lifa og maður grátbiður Guð um að fá sjálfur að deyja í stað þess að lifa með sorginni. Það eru þessir aumingjans menn sem Drottinn getur notað vilja þeir það. Í Efesusbréfinu 2 kafla og 8 versi segir: Mér, sem minnstur er allra heilagra, var veitt sú náð að boða heiðingjunum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists. Við sem erum mæður og feður skulum biðja fyrir drengjunum okkar að þeir munu aldrei fá að kynnast þeirri þjáningu sem það er að taka annarra líf hér á jörðu. Ég bið Drottinn að blessa og fylla foreldra fórnarlambsins þeim friði og þeirri huggun sem Hann einn getur veit. Guð blessi ykkur öll.

Svanur (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halla Rut
Halla Rut
Hef sterkar skoðanir á ýmsum samfélagsmálum og er viljug til að ræða þau öll á málefnalegum grundvelli. 

"Orð eru til alls fyrst" 

Ég á þrjú börn, allt stráka og er sá í miðjunni andlegafatlaður en það hefur mótað líf mitt mikið. 

Er kaupmaður af líf og sál.

Verið óhrædd við að senda mér línu. Póstfang: halla@kjosehf.is

Sími: 6605400.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 1089
  • Frá upphafi: 793633

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 578
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband